Ársrit VIRK komið út

Ársrit VIRK 2021 er komið út. Í ársritinu er að finna greinargóðar upplýsingar um starfsemi VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs, fjölbreyttar greinar um starfsendurhæfingu og tengd viðfangsefni, viðtöl við ráðgjafa og atvinnulífstengla VIRK, viðtöl við þjónustuþega sem lokið hafa starfsendurhæfingu sem og viðtöl við samstarfsaðila VIRK.

Ársritinu verður dreift um allt land en nálgast má ársritið á skrifstofu VIRK í Borgartúni 18 eða á starfsstöðvum ráðgjafa VIRK.

Finna má ársritið rafrænt á Issuu og á vef VIRK með fyrri ársritum.

Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, þær, Helga Þyri sem jafnframt er verkefnastjóri á svæðinu, Kristín, Nicole og Svana. Þær eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu. Þær eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri.

  • Nicole er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju á Dalvík á þriðjudögum. 

  • Svana er með fasta viðveru á skrifstofu Einingar-Iðju í Fjallabyggð á miðvikudögum 

Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem Atvinnulífstengill hjá VIRK. Hann er starfmaður Framsýnar, en starfar fyrir öll stéttarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu. Hann er með aðsetur á skrifstofu FVSA á 3. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri tvo daga í viku. Hann er með síma 464 6608 og netfangið virk@framsyn.is