Ársfundur VIRK

Sökum samkomutakmarkana vegna COVID-19 þá verður ársfundur VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs haldinn með rafrænu sniði þriðjudaginn 27. apríl kl. 13.00-14.00.

Dagskrá

Starfsemi VIRK - Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK
Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt skipulagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningur liðins árs kynntur og borinn upp til samþykktar.
  3. Tilkynning um skipan stjórnar.
  4. Kosning endurskoðenda.
  5. Önnur mál.

Ársfundurinn er öllum opinn og verður streymt á vefsíðu VIRK en meðlimir fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt.

Ársreikningur VIRK 2020 var samþykktur af stjórn VIRK þann 8. apríl og liggur fyrir ársfundinum til samþykktar.