Ársfundur Stapa fer fram á morgun

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs fer fram á morgun, miðvikudaginn 4. maí, í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri og hefst kl. 14:00. Félagið á rétt á að senda 37 fulltrúa á fundinn og voru þeir kosnir á aðalfundi félagsins sem haldinn var 12. apríl sl.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreikning og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Breytingar á samþykktum
  5. Kosning stjórnar
  6. Kosning löggilts endurskoðanda
  7. Ákvörðun um laun stjórnar
  8. Önnur mál

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans. Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögurnar hafa verið sendar aðildarfélögum og þær má jafnframt finna á heimasíðunni hér.

Önnur gögn má finna hér;