Árið 2020 hefur verið allt annað en hefðbundið og fer í sögubækurnar fyrir heimsfaraldur sem er sá versti í rúma öld og heimskreppu sem er sú dýpsta í 90 ár. Í þessum ólgusjó hefur Drífa Snædal staðið í stafni hjá ASÍ. Í þessu viðtali í hlaðvarpi ASÍ fer hún yfir árið 2020 og þær áskoranir sem það bauð upp á.