Það hafa verið nokkuð annasamir dagar hjá forystufólki Starfsgreinasambandsins undanfarið. Eitt af þeim atriðum sem skipta miklu máli er að halda félagsmönnum okkar og almenningi upplýstum um gang mála í viðræðunum. Að loknum fundi viðræðunefndar SGS með Samtökum atvinnulífsins í gær þar sem samþykkt var að vísa kjaradeilu aðila til ríkissáttasemjara skýrði formaður SGS og Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson, þá ákvörðun og stöðuna almennt fyrir spenntum fjölmiðlamönnum.