Annar fundur í samninganefnd

Fundurinn verður á Bryggjunni
Fundurinn verður á Bryggjunni

Í gær fór fram fundur í samninganefnd félagsins þar sem farið var yfir stöðu mála í sambandi við samning SGS og SA. Á fundinum var unnið í hópum og málin rædd.

Búið er að boða annan fund í nefndinni næsta fimmtudag á veitingastaðnum Bryggjunni á Akureyri. Fundurinn hefst kl. 20.

Nefndarmenn utan Akureyrar þurfa að hafa samband við sinn svæðisfulltrúa til að sameinast í bíla.