AN þingi frestað

Stjórn og varastjórn Alþýðusambands Norðurlands kom saman til fundar fyrr í vikunni og var þar ákveðið að fresta þingi sambandsins sem fram átti að fara síðar í haust fram á næsta ár.

Þingið mun því fara fram á Illugastöðum í Fnjóskadal dagana 28. og 29. apríl 2022.