AN kortið: Tilboð hjá sundlaug Akureyrar

Vert er að minna á frábært tilboð sem Sundlaug Akureyrar er með á árskortum fyrir AN korthafa dagana 20. janúar til 5. febrúar 2015. AN korthafar fá þá árskort í sundlaugina með 25% afslætti frá fullu verði sem er kr. 33.500.

Félagsmenn Einingar-Iðju sem ekki hafa fengið kortið í hendur geta nálgast það á skrifstofum félagsins á Akureyri, Dalvík eða í Fjallabyggð.

Starfssvæði Alþýðusamband Norðurlands (AN) er Norðurland og er hlutverk þess að vinna að alhliða hagsmunum aðildarfélaga og félagsmanna þeirra.


Aðildarfélög AN eru:

Aldan, stéttarfélag
Eining-Iðja
Byggiðn, Félag byggingamanna
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri
Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni
Framsýn, stéttarfélag
Samstaða
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Sjómannafélag Ólafsfjarðar
Verkalýðsfélag Þórshafnar
Þingiðn