AN kortið - ný heimasíða og nýr samstarfsaðili

Nú er AN afsláttarkortið komið með nýja og flotta heimasíðu þar sem allir samstarfaðilar kortsins eru listaðir upp og sértilboð auglýst sérstaklega. Á síðunni er hægt að skrá sig á póstlista og fá þannig send tilboð og upplýsingar um nýja samstarfsaðila. Af þessu tilefni býður AN kortið upp á leik þar sem nöfn allra sem skrá sig á póstlistann í október og nóvember fara í pott sem dregið verður úr í byrjun desember. Vinningar eru ekki af verri endanum. Þrjár bensínáfyllingar, hver að verðmæti kr. 15.000, og fjórar helgarleigur í orlofshúsi á Illugastöðum að vetri til.

Nýr samstarfsaðili
BK Kjúklingur í Reykjavík hefur nú bæst í hóp þeirra fyrirtækja sem veita handhöfum Afsláttarkorts AN afslátt. Nú geta félagsmenn sem eiga leið til Reykjavíkur kíkt á veitingastaðinn BK Kjúkling sem er á Grensásvegi og nýtt sér 15% afslátt til AN félaga.