Þegar ný heimasíða AN kortsins fór í loftið var ákveðið að bregða á leik. Nöfn allra sem skrá sig á
póstlista heimasíðunnar fram til 12. desember nk. fara í pott og verður dregið úr honum að morgni 13. desember nk.
Vinningar eru ekki af verri endanum. Þrjár bensínáfyllingar, hver að verðmæti kr. 15.000, og fjórar helgarleigur í orlofshúsi
á Illugastöðum að vetri til.
Afsláttarkort AN var tekið í notkun í desember 2012. Kortið er samvinnuverkefni allra aðildarfélaga
Alþýðusambands Norðurlands og veitir félagsmönnum
þeirra afslátt hjá fjölmörgum fyrirtækjum.