AN kortið: Afsláttur á árskorti

Sundlaug Akureyrar verður með frábært tilboð á árskortum fyrir korthafa afsláttarkorts AN dagana 17. janúar til 31. janúar 2014. AN korthafar fá þá árskort í sundlaugina með 25% afslætti, eða á kr. 24.375 í stað kr. 32.500.
 
Kortið er samvinnuverkefni allra aðildarfélaga Alþýðusambands Norðurlands og er Eining-Iðja eitt þeirra félaga. Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið kortið í hendur geta nálgast það á einhverja af skrifstofum félagsins; á Akureyri, Dalvík eða Fjallabyggð.