Ályktun miðstjórnar ASÍ um starfsemi Primera Air Nordic

Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að sjá til þess að Vinnumálastofnun sinni því eftirlitshlutverki sem stofnunni er ætlað á íslenskum vinnumarkaði.

Flugfreyjufélag Íslands og Alþýðusamband Íslands hafa undanfarin ár leitast við að stöðva ólöglega starfsemi Primera Air Nordic og félagsleg undirboð þess á íslenskum vinnumarkaði. Þegar starfsemi félagsins stöðvast nú vegna greiðsluþrots liggur fyrir boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar frá og með 15. nóvember n.k.

Miðstjórn ASÍ harmar  að Vinnumálastofnun hafi, þrátt fyrir ítrekaðar kröfur FFÍ og ASÍ, látið hjá líða að nota þau lagalegu úrræði sem stofnunin hefur til þess að stöðva ólöglega starfsemi Primera Air Nordic hér landi. Af þeim ástæðum eru nú áhafnir þeirra flugvéla sem gerðar hafa verið út frá Íslandi strandaglópar erlendis, fólk sem greidd hafa verið smánarlaun og sem ranglega hefur verið skráð sem verktakar. Til viðbótar er fjöldi Íslendinga nú strandaglópar erlendis vegna gjaldþrotsins.

Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að sjá til þess að Vinnumálastofnun sinni því eftirlitshlutverki sem stofnunni er ætlað á íslenskum vinnumarkaði m.a. til þess að koma í veg fyrir brotastarfsemi erlendra fyrirtækja og aðför þeirra að íslenskum vinnumarkaði.