Alþýðusamband Íslands krefst þess að Bláfugl og Samtök atvinnulífisins standi við gildandi kjarasamninga og virði niðurstöðu Félagsdóms.
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur að með framgöngu Bláfugls og Samtaka atvinnulífsins vegna ólögmætra uppsagna félagsmanna FÍA sé gerð alvarleg atlaga að grundvallarréttindum stéttarfélaga og þar með öllu launafólki á Íslandi. ASÍ lýsir yfir stuðningi við baráttu starfsfólks hjá Bláfugli og krefst þess að Bláfugl og Samtök atvinnulífsins standi við gildandi kjarasamning og niðurstöðu Félagsdóms en dómurinn hefur dæmt uppsagnir starfsfólks í kjaraviðræðum ólögmætar.
ASÍ áréttar enn og aftur sameiginlega yfirlýsingu (frá 17. september 2020) sem SA voru aðilar að, þar sem kemur fram að aðilar séu sammála um að fara eftir leikreglum og lögum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði. Viðbrögð SA brjóta í bága við yfirlýsinguna.
Hlekkur á sameiginlega yfirlýsingu af vefsíðu ASÍ: