Ályktun frá stjórn Einingar-Iðju

Stjórn Einingar-Iðju við Eyjafjörð fordæmir þá afarkosti sem Icelandair ætlar að setja flugfreyjum og flugþjónum í hlutastarfi. Þessi ákvörðun beinist eingöngu að áðurnefndum starfshópi innan fyrirtækisins. Þeir sem verða fyrir uppsögnunum eru að miklum meirihluta konur. Stjórn Einingar-Iðju skorar á stjórnendur Icelandair að endurskoða þessa ákvörðun.