Nú standa yfir framkvæmdir á skrifstofu félagsins á Akureyri. Þó framkvæmdasvæðið nái nú einungis yfir sal félagsins, geymslur og salerni þá biðst félagið velvirðingar á truflunum sem óneitanlega fylgja slíkum framkvæmdum. Um áramótin verður svo öll skrifstofan orðin að vinnusvæði og því mun starfsemi félagsins færast upp í sal Lionsklúbbsins Hængs, sem er á 4. hæð Alþýðuhússins.