Ákvæði um heildarvinnutíma, hvíldartíma og skipulag vinnutíma

Á heimasíðu SGS kemur fram að Vinnueftirlitið sendi nýlega frá sér bréf þar sem stofnunin vill, að gefnu tilefni, vekja athygli fyrirtækja í ferðaþjónustu á gildandi vinnutímaákvæðum. Í bréfinu er greint frá helstu ákvæðum sem eru í gildi varðandi hvíldartíma, frídaga og hámarksvinnutíma, gildandi reglum varðandi aksturs- og hvíldartíma ökumanna og fleiri mikilvægum atriðum sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi vinnutíma fólks. Í bréfinu brýnir Vinnueftirlitið fyrir stéttarfélögum, samtökum atvinnurekenda og fyrirtækjum í ferðaþjónustu að vera vakandi fyrir ákvæðum er varða vinnutíma og minnir á að þau séu fest í lög til þess að vernda heilsu vinnandi fólks.

Tekið er fram að rannsóknir hafi sýnt að næturvinna og óreglulegur vinnutími geti haft áhrif á athyglisgáfu og viðbragðsflýti. Það sé því þýðingarmikið að nætur- og vaktavinna sé skipulögð á þann hátt að sem minnst verði dregið úr eðlilegum svefni og hvíld starfsmanns.

Bréfið í heild sinni má nálgast hér.