Akureyrarbær fellur frá hækkunum

Fjallað var um gjaldskrár Akureyrarkaupstaðar á fundi bæjarráðs í morgun og var samþykkt að falla frá fyrirhugaðri hækkun á vistunargjöldum í leikskólum og gjöldum vegna félagsþjónustu sem koma áttu til framkvæmda um áramót. „Með þessu vill bæjarráð leggja lóð sitt á vogarskálarnar til að stemma stigu við verðbólgu og vinna að stöðugleika. Til að ná sömu markmiðum var á stjórnarfundi Norðurorku í lok nóvember samþykkt að hækka ekki gjaldskrár fyrir hitaveitu og rafveitu á þjónustusvæði fyrirtækisins. Bæjarráð vekur athygli á því að hér eftir sem hingað til verða ekki innheimt gjöld fyrir strætisvagnaferðir, bókasafnsskírteini og bifreiðastæði í miðbænum,“ segir á heimasíðu bæjarins.

Eining-Iðja fagnar þessari ákvörðun bæjarráðs Akureyrar. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju segist vera mjög ánægður með þessa niðurstöðu. „Ég er líka ánægður með hvernig sveitarfélögin á svæði félagsins tóku í fyrirspurn okkar varðandi fyrirhugaðar hækkanir sem við sendum á þau í nóvember. Öll nema eitt, Eyjafjarðarsveit, hafa svarað og flest hafa endurskoðað ákvarðanir varðandi hækkanir á gjaldskrám.“