Aftur kíkt á aðstæður í Vaðlaheiðargöngum

Fyrr í dag var haldinn fundur vegna vinnuaðstæðna í Vaðlaheiðargöngum. Fundinn sátu yfirmenn svæðisins, starfsmenn frá Vinnueftirlitinu, Björn og Nicole frá Einingu-Iðju og Heimir frá Byggiðn. Á fundinum var farið yfir stöðu mála í göngunum, m.a. vegna vinnuaðstæðna sem starfsmenn eru í við vinnu sína vegna heita vatnsins sem enn rennur úr berginu. Að fundi loknum var farið inn í göngin og aðstæður kannaðar.