Afsláttarkort AN - Nýr samstarfsaðili

Ert þú með Afsláttarkort AN?
Ert þú með Afsláttarkort AN?

Við hvetjum félagsmenn til þess að fylgjast vel með Afsláttarkorti AN á heimasíðunni, en unnið er að því að bæta við nýjum samstarfsaðilum. Á næstunni verður útbúinn bæklingur sem sem félagsmenn geta sótt og prentað út af síðunni.

Félagið notar trúnaðarmannakerfið til að dreifa kortum til félagsmanna, en þeir sem ekki hafa fengið kort geta nálgast það á skrifstofum félagsins.

Nýr samstarfsaðili
Undirritaður hefur verið samningur við Tékkland bifreiðaskoðun sem opnar á næstunni skoðunarstöð á Akureyri.

Félagsmenn fá því 15% afslátt af aðalskoðunargjaldi hjá Tékklandi gegn framvísun afsláttarkorts AN.

Skoðunarstöðin mun opna í byrjun febrúar en hún verður staðsett í Dalsbraut 1 á Akureyri, við hliðina á Glerártorgi.

Heimasíða Tékklands er www.tekkland.is