Afhending á 25 leiguíbúðum Bjargs íbúðafélags á Akureyri

Á myndinni eru Björn og Anna ásamt Guðrúnu Kristjánsdóttur, starfsmanni á leigusviði Bjargs, og Sigu…
Á myndinni eru Björn og Anna ásamt Guðrúnu Kristjánsdóttur, starfsmanni á leigusviði Bjargs, og Sigurði Halldóri Örnólfssyni, sérfræðingi á framkvæmdarsviði Bjargs. Vert er að taka fram að þau voru að sjálfsögðu öll skælbrosandi er myndin var tekin.

Fyrr í dag átti sér stað stór afhending á íbúðum Bjargs íbúðafélags á Akureyri. 25 glænýjar íbúðir voru þá afhentar nýjum eigendum í Guðmannshaga 2. Fyrstu leigutakar Bjargs fluttu inn í nóvember síðastliðinn og var þetta því afhending númer tvö. Tvær íbúðir eru enn lausar en Bjarg mun leigja út 31 íbúð við Guðmannshaga.

Nokkrir formenn stéttarfélaga kíktu á íbúðirnar áður en afhending fór fram, þar á meðal Björn formaður og Anna varaformaður félagsins. Íbúðirnar eru glæsilegar og segir Björn að það sé frábær áfangi að verið sé að flytja inn í þetta margar íbúðir í dag, í fyrstu blokkinni sem Bjarg byggir á Akureyri. "Það er búið að vera baráttumál verkalýðshreyfingarinnar til margra ára að fá ódýrara leiguhúsnæði. Í okkar síðustu Gallup könnun sem gerð var í lok síðasta árs kom fram að um 25% okkar félagsmanna eru á leigumarkaðinum þannig að eitt af stóru verkefnum félagsins er að ýta á að byggt verði hagvæmari leiguíbúðir. Nú verður farið á fullt að ýta á Bjarg að byggja aðra blokk á Akureyri. Bjarg er með samkomulag við Akureyrarbæ um að byggja í bænum allt að 70 íbúðir og við eigum bara að uppfylla það. Það er nóg framboð af þeim sem vantar ódýrt leiguhúsnæði á Akureyri"

Verktakinn Lækjarsel sá um framkvæmdina. Bjarg er húsnæðis og sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Starfsmenn verktakans voru í kaffipásu og litu Björn og Anna á þá. Spjölluðu um framkvæmdina og óskuðu þeim til hamingju með verkið.

     

 

 

 

Nánari upplýsingar um Bjarg íbúðafélag