Ætlar þú að dvelja um jólin á Illugastöðum?

Gestir á Illugastöðum um jól og áramót 2020-2021, gott er að hafa eftirfarandi í huga:

  • Um jól og áramót verður afgreiðslan opin á eftirfarandi tíma:
    • 22., 23. 29. og 30. desember milli kl. 16:00 og 17:00
  • Ef snjóar er ekki hægt að reikna með snjómokstri á Illugastaðavegi í Fnjóskadal frá hádegi 24. til laugardagsins 26. desember og frá hádegi 31. desember til 2. janúar. Það sama á við um svæðið sjálft á Illugastöðum. Mokstur á Illugastaðavegi er allt að þrisvar í viku. Þá daga sem mokað verður, ef þörf krefur, verður bara mokað einu sinni á dag. Ef veðurútlit er tvísýnt er ekki víst að mokað verði þann daginn, heldur færist það á næsta dag.
  • Nauðsynlegt er að láta vita á auglýstum opnunartíma í síma 462 6199 ef gestir komast ekki á þeim tíma, svo hægt sé að gera nauðsynlegar ráðstafanir.