Aðventuferð til Kaupmannahafnar

Vert er að minna á að Eining-Iðja, í samvinnu við Tanna Travel, efnir til aðventuferðar til Kaupmannahafnar fyrir félagsmenn dagana 1. til 4. desember nk. ef næg þátttaka fæst. Hámarksfjöldi er 30 manns. Hér gefst kjörið tækifæri að skella sér í stutt og skemmtilegt frí og safna kröftum í „Køben” áður en jólaundirbúningurinn er tekinn með trompi!

Flogið verður með Icelandair frá Keflavík:

  • 1. desember er flogið kl. 08:00, lent í Kaupmannahöfn kl. 12:00 að staðartíma.
  • 4. desember er flogið heim kl. 20:10, lent í Keflavík kl. 22:20.

Gist er á Comfort Hotel Vesterbro sem er miðsvæðis í Kaupmannahöfn, stutt að fara á Strikið og í Tívolí.

Verð kr. 106.500 á mann í tveggja manna herbergi.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: kr. 23.000.
Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 30.000, greiðist innan 10 daga frá skráningu.

Innifalið í verði:

  • Flug og skattar, Keflavík-Kaupmannahöfn-Keflavík
  • Akstur til og frá flugvelli í Kaupmannahöfn
  • Gisting með morgunverði í 3 nætur á Comfort Hotel Vesterbro****

Skráning fer fram á skrifstofu Einingar-Iðju á Akureyri og síma 460 3600. Skráningu lýkur í byrjun október.