Aðventuferð til Kaupmannahafnar

Vert er að minna á aðventuferð til Kaupmannahafnar sem Eining-Iðja efnir til, í samvinnu við Ferðaskrifstofu Akureyrar, fyrir félagsmenn dagana 5.til 9. desember nk. Hámarksfjöldi er 50 manns, enn eru nokkur sæti laus.

Skráning og nánari upplýsingar má fá á skrifstofum Einingar-Iðju og síma 460 3600.

Verð kr. 99.500 á mann í tveggja manna herbergi miðað við gengi 27. júní sl. Utanfélagsmenn, sem áhuga á að fara í ferðina, greiða aukalega kr. 5.000.

Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 30.000, greiðist innan 5 daga frá skráningu.

Innifalið í verði:

  • Gisting með morgunverði í 4 nætur á Scandic Hotel ****
  • Flug: Keflavík - Kaupmannahöfn - Keflavík. (Brottför frá Keflavík kl. 14:15 og heim aftur kl. 13:20)
  • Akstur til og frá flugvelli í Kaupmannahöfn

ATHUGIÐ!
Boðið verður upp á rútuferð suður að morgni 5. desember og heim aftur um kvöldið 9. desember fyrir kr. 8.000 á mann.