AÐVENTUFERÐ TIL KAUPMANNAHAFNAR

Eining-Iðja, í samvinnu við Ferðaskrifstofu Akureyrar, efnir til aðventuferðar til Kaupmannahafnar fyrir félagsmenn dagana 5. til 9. desember nk., ef næg þátttaka fæst. Hámarksfjöldi er 50 manns.

 

Hér gefst kjörið tækifæri að skella sér í stutt og skemmtilegt frí og safna kröftum í ”Køben” áður en jólaundirbúningurinn er tekinn með trompi!

 

Skráning og nánari upplýsingar má fá á skrifstofum Einingar-Iðju og síma 460 3600 frá og með kl. 8:00 föstudaginn 17. ágúst nk.

 

Verð kr. 99.500 á mann í tveggja manna herbergi miðað við gengi 27. júní sl.

 

Óafturkræft staðfestingargjald er kr. 30.000, greiðist innan 5 daga frá skráningu.

 

Innifalið í verði:

         Gisting með morgunverði í 4 nætur á Scandic Hotel ****

         Flug: Keflavík - Kaupmannahöfn - Keflavík.

                   (Brottför frá Keflavík kl. 14:15 og heim aftur kl. 13:20)

         Akstur til og frá flugvelli í Kaupmannahöfn

 

 
ATHUGIÐ!

Boðið verður upp á rútuferð suður að morgni 5. desember og heim aftur um kvöldið 9. desember fyrir kr. 8.000 á mann.