Aðildarviðræður við ESB til umræðu á þingi ASÍ

Miðstjórn ASÍ samþykkti á fundi sínum í gær, 10. október, á grundvelli 1. málsgreinar 24. greinar laga ASÍ að leggja fram drög að ályktunum um kjaramál og Evrópumál fyrir 40. þing ASÍ sem fram fer dagana 17. til 19. október nk. Miðstjórn gerir þetta að tillögu forseta ASÍ svo þingið geti tekið stefnumarkandi afstöðu til fyrrgreindra mála.