Aðeins 2 sæti laus í utanlandsferðina

Nú fer hver að verða síðastur að bóka sæti í utanlandsferð félagsins í sumar því einingis eru tvö sæti laus í hana. Þá eru jafnframt komnar um 40 skráningar í ferð félagsins út í Grímsey. Því er ekki eftir neinu að bíða með að skrá sig fyrir þá sem hug hafa á að fara með, því bæði er um að ræða lágmarks- og hámarksfjölda í ferðirnar. 

Kíkið við á skrifstofur félagsins, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.

  • Grímsey 23. júní 2019
  • Fjögur lönd á 11 dögum 10. til 20. ágúst 2019 

Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2019 hér.

Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.

Athugið að síðar verður auglýst hvenær byrjað verður að skrá í eins dags ferðina.