Aðalfundur félagsins er í kvöld - skrá í rútu fyrir kl. 13

Í kvöld, fimmtudaginn 21. mars, fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 19:30 og verður í HOFI á Akureyri. Félagar, fjölmennum á fundinn! Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði og stoppar á hefðbundnum stöðum á leiðinni verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 í dag.

Dagskrá 

  1.   Venjuleg aðalfundarstörf.
  2.   Lagabreytingar og breytingar á reglugerðum sjóða og deilda.
  3.   Kosning 41 fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs.
  4.   Önnur mál.

Veitingar og happdrætti

Félagar fjölmennum!!!

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar 

  •   Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofunni Eyrargötu 24b
  •   Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
  •   Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofunni Hafnarbraut 5.
  •   Þeir sem ætla að fá far með rútunni verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 fimmtudaginn 21. mars.

Grenivík, svæðisfulltrúi í síma 844 5729. Hringið fyrir kl. 13, 21. mars til að sameinast í bíla.
Hrísey, svæðisfulltrúi í síma 692 4910. Hringið fyrir kl. 13, 21. mars til að sameinast í bíla.