Aðalfundur félagsins er í kvöld - skrá í rútu fyrir kl. 13

Í kvöld, fimmtudaginn 22. mars, fer fram aðalfundur Einingar-Iðju. Fundurinn hefst kl. 19:30 og verður í HOFI á Akureyri. Félagar, fjölmennum á fundinn! Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði og stoppar á hefðbundnum stöðum á leiðinni verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 í dag.

Dagskrá 

  1. Venjuleg aðalfundarstörf.
  2. Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs.
  3. Kosning 36 fulltrúa á ársfund Stapa lífeyrissjóðs.
  4. Önnur mál.

Veitingar og happdrætti

Félagar fjölmennum!!!

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofunni Eyrargötu 24b
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg.
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofunni Hafnarbraut 5.
  • Þeir sem ætla að fá far með rútunni verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 fimmtudaginn 22. mars.

Grenivík, svæðisfulltrúi í síma 844 5729. Hringið fyrir kl. 13, 22. mars til að sameinast í bíla.

Hrísey, svæðisfulltrúi í síma 692 4910. Hringið fyrir kl. 13, 22. mars til að sameinast í bíla.