Aðalfundur Einingar-Iðju verður á morgun

Aðalfundur Einingar-Iðju verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 16. apríl, í salnum Hömrum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Fundurinn hefst kl. 19:30.

Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf.
  2. Kosning 31 fulltrúa á aðalfund Stapa.
  3. Tillaga um ritun á sögu félagsins.
  4. Önnur mál

Kaffiveitingar og happdrætti

Hvetjum alla félagsmenn til að mæta

Stjórnin