Aðalfundir starfsgreinadeilda félagsins

Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju fóru fram í gær, mánudaginn 11. febrúar, í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Góð mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Bragi Bergmann frá FREMRI almannatengsl fjallaði á skemmtilegan hátt um limrur og fjölbreytileika þeirra.

Að loknu mjög góðu erindi Braga var boðið upp á veitingar og er fundarmenn höfðu gert sér þær að góðu héldu deildirnar þrjár; Opinbera deildin, Matvæla- og þjónustudeildin og Iðnaðar- og tækjadeildin, sinn aðalfund hver á sínum stað í húsinu þar sem fram fóru venjuleg aðalfundarstörf. Í ár var kosið í öllum deildum til tveggja ára um embætti formanns, ritara og þriggja meðstjórnanda. Einnig var kosið um einn meðstjórnanda til eins árs í Iðnaðar- og tækjadeildinni og í Matvæla- og þjónustudeildinni. Í Opinberu deildinni þurfti einnig að kjósa varaformann til eins árs.

Matvæla og þjónustudeild

Í byrjun fundar flutti Tryggvi Jóhannsson, formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um sex af níu stjórnarmenn deildarinnar.

Kosið var til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur. Tryggvi Jóhannsson bauð sig fram sem formaður, Sigríður Þ. Jósepsdóttir sem ritari og þau Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Steinþór Berg Lúthersson og Birna Þórmundsdóttir buðu sig fram sem meðstjórnendur til tveggja ára og Guðmundur Guðmundsson til eins árs. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn var Stefán Aðalsteinsson varaformaður og meðstjórnendurnir Sólveig Auður Þorsteinsdóttir og Börkur Þór Björgvinsson.

Nýr í stjórn kom Guðmundur Guðmundsson, í stað Hrafnhildur Baldursdóttir sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. 

Iðnaðar- og tækjadeild

Í byrjun fundar flutti Ingvar Kristjánsson, formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um sex af níu stjórnarmenn deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur, auk eins meðstjórnanda til eins árs. Ingvar Kristjánsson bauð sig fram sem formaður, Gunnar Magnússon sem ritari og til meðstjórnenda til tveggja ára buðu sig fram Ólafur Ólafsson, Hjörtur Þór Hjartarson og Óðinn Björnsson. Til eins árs sem meðstjórnanda bauð sig fram Símon Hrafn Vilbergsson. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.

Fyrir í stjórn voru Svavar Magnússon varaformaður og meðstjórnendurnir Rannveig Kristmundsdóttir og Þormóður Sigurðsson.

Nýir í stjórnina komu Ólafur Ólafsson, Óðinn Björnsson og Símon Hrafn Vilbergsson í stað Páls Brynjars Pálssonar, Steinars Inga Gunnarssonar og Þórs Jóhannessonar sem gáfu ekki aftur kost á sér. 

Opinbera deildin

Að lokinni skýrslu stjórnar sem Sigríður K. Bjarkadóttir, formaður deildarinnar, flutti var gegnið til kosninga. Í ár var kosið um sex af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur, en einnig þurfti að kjósa varaformann til eins árs. Sigríður K. Bjarkadóttir bauð sig fram til formanns, Anna Dóra Gunnarsdóttir til ritara og til meðstjórnanda buðu sig fram Ásrún Karlsdóttir, Tómas Jóhannesson og Þórhalla Þórhallsdóttir. Guðbjörg Helga Andrésdóttir bauð sig fram til varaformanns í eitt ár. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn. Fyrir í stjórn voru meðstjórnendurnir Hrönn Vignisdóttir, Halldór Ari Brynjólfsson og Ingibjörg M. Ingvadóttir.

Guðbjörg Helga kom ný inn í stjórnina í stað Elísabetu Skarphéðinsdóttur.