Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju fóru fram mánudaginn 12. febrúar sl. í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Góð mæting var á fundina sem tókust mjög vel. Í upphafi var sameiginleg dagskrá þar sem Aníta Jónsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í SÍMEY, var með mjög skemmtilegan fyrirlestur sem bar nafnið „Ábyrgð á eigin starfsþróun.“
Að loknu mjög góðu erindi Anítu var boðið upp á veitingar og er fundarmenn höfðu gert sér þær að góðu héldu deildirnar þrjár; Opinbera deildin, Matvæla- og þjónustudeildin og Iðnaðar- og tækjadeildin, sinn aðalfund hver á sínum stað í húsinu þar sem fram fóru venjuleg aðalfundarstörf. Í ár var kosið í öllum deildum til tveggja ára um embætti varaformanns og þriggja meðstjórnanda. Einnig var kosið um einn meðstjórnanda til eins árs í Iðnaðar- og tækjadeildinni og í Opinberu deildinni þurfti einnig að kjósa ritara og tvo meðstjórnendur til eins árs.
Á fundunum voru kynntar niðurstöður launakönnur félagsins og sáu starfsmenn deildanna um það, þau Anna Júlíusdóttir, Björn Snæbjörnsson og Eyrún Halla Eyjólfsdóttir.
Matvæla og þjónustudeild
Í byrjun fundar flutti Tryggvi Jóhannsson, formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um fjóra af níu stjórnarmenn deildarinnar.
Kosið var til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur. Stefán Aðalsteinsson bauð sig fram sem varaformaður og þau Börkur Þór Björgvinsson, Hrafnhildur Baldursdóttir og Sólveig Auður Þorsteinsdóttir buðu sig fram sem meðstjórnendur.Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.
Fyrir í stjórn var Tryggi Jóhannsson formaður, Sigríður Jósepsdóttir ritari og meðstjórnendurinir AnnaGuðrún Ásgeirsdóttir, Birna Þórmundsdóttir og Steinþór Berg Lúthersson.
Ný í stjórn kom Hrafnhildur Baldursdóttir, í stað Birnu Harðardóttir sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Iðnaðar- og tækjadeild
Í byrjun fundar flutti Ingvar Kristjánsson, formaður deildarinnar, skýrslu stjórnar, og að því loknu var gengið til kosninga um stjórnarmenn deildarinnar. Á fundinum var kosið um fimm af níu stjórnarmenn deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur, auk eins meðstjórnanda til eins árs. Svavar Magnússon bauð sig fram sem varaformaður og til meðstjórnenda til tveggja ára buðu sig fram Páll Brynjar Pálsson Rannveig Kristmundsdóttir og Þormóður Sigurðsson. Til eins árs sem meðstjórnanda bauð sig fram Steinar Ingi Gunnarsson. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn.
Fyrir í stjórn voru Ingvar Kristjánsson formaður, Gunnar Magnússon ritari og meðstjórnendurnir Þór Jóhannesson og Hjörtur Þór Hjartarson.
Nýr í stjórnina kom Steinar Ingi Gunnarsson í stað Hilmar Poulsen sem ekki er lengur í félaginu.
Opinbera deildin
Að lokinni skýrslu stjórnar sem Sigríður K. Bjarkadóttir, formaður deildarinnar, flutti var gegnið til kosninga. Í ár var kosið um sjö af níu stjórnarmönnum deildarinnar. Kosið var til tveggja ára um varaformann og þrjá meðstjórnendur, en einnig þurfti að kjósa til eins árs ritara og tvo meðstjórnendur. Elísabet Skarphéðinsdóttir bauð sig fram til varaformanns og til meðstjórnanda til tveggja ára buðu sig fram, Halldór Ari Brynjólfsson, Hrönn Vignisdóttir og Ingibjörg M. Ingvadóttir. Anna Dóra Gunnarsdóttir, sem kosin var meðstjórnandi í fyrra til tveggja ára í fyrra bauð sig fram í ritara til eins árs og til meðstjórnenda til eins árs buðu þau Tómas Jóhannesson og Þórhalla Þórhallsdóttir sig fram. Engin mótframboð bárust og var listinn því sjálfkjörinn. Fyrir í stjórn voru Sigríður K. Bjarkadóttir formaður og Ásrún Karlsdóttir meðstjórnandi.
Ingibjörg, Tómas og Þórhalla komu ný inn í stjórnina og Anna Dóra er nú orðin ritari en var áður meðstjórnandi. Guðrún Lárusdóttir, Hildur Ingvarsdóttir og Sigurbjörg Ingvadóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.