Aðalfundir starfsgreinadeilda félagsins

Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju standa nú yfir á Hótel KEA á Akureyri. Eins og vani er byrjuðu deildirnar þrjár saman á fundi og í þessum töluðu orðum er Þórgnýr Dýrfjörð að flytja stórgott erindi sem hann kallar: Mikilvægi þess að vera ekki viss. Þar sem hann er að fjalla um skoðanir fólks á fjölbreyttan hátt.

Að erindi loknu verður kaffi og að því loknu munu deildirnar þrjár; Opinbera deildin, Matvæla- og þjónustudeildin og Iðnaðar- og tækjadeildin, halda sinn aðalfund hver á sínum stað í húsinu þar sem fram fara venjuleg aðalfundarstörf. Síðar í vikunni verður hægt að lesa á heimasíðunni umfjöllun um hvern fund fyrir sig.