Aðalfundir starfsgreinadeilda Einingar-Iðju fóru fram í gær, fimmtudaginn 7. febrúar, í
Alþýðuhúsinu á Akureyri. Félagið skiptist í þrjár deildir, sem eru Opinbera deild, Matvæla- og þjónustudeild og
Iðnaðar- og tækjadeild. Í byrjun voru allar deildirnar þrjár saman á fundi þar sem Davíð Kristinsson, Heildrænn
Heilsuþjálfari, var með mjög fróðlegt fræðsluerindi um hreyfingu og mataræði.
Að loknu mjög góðu erindi Davíðs var boðið upp á kaffiveitingar. Að kaffi loknu hélt hver deild fyrir sig sinn aðalfund, hver á
sínum stað í húsinu þar sem fram fóru venjuleg aðalfundarstörf. Næsta mánudag verður hægt að lesa á
heimasíðunni umfjöllun um hvern fund fyrir sig.