Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðalfundir deilda félagsins rafrænir í ár. Fundirnir verða dagana 2. til 4. febrúar nk. og munu allir hefjast kl. 19:30.
Félagsmenn sem ætla að mæta á fund þurfa að skrá sig hér fyrir neðan, til að hægt verði að senda viðkomandi hlekk á fundinn.
Á fundunum verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.
Við mætum með fundinn til þín!
Verið virk í deildinni ykkar!