Aðalfundir deilda félagsins fara fram kl. 19:30 í kvöld á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri. Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.
Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir, Iðnaðar- og tækjadeild, Matvæla- og þjónustudeild og Opinberadeild.
Í ár verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig. Einnig þarf að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs í Iðnaðar- og tækjadeild og í Matvæla- og þjónustudeild. Í Opinberudeild þarf líka að kjósa varaformann til eins árs.
ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar
Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 í dag, mánudaginn 11. febrúar.
Sameinast verður í bíla frá:
Mætið á fundinn, verið virk í deildinni ykkar!
Veitingar í boði
Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir heppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur.