Aðalfundir deilda félagsins árið 2020 fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri í kvöld, fimmtudaginn 6. febrúar, kl. 19:30. Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.
ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar
Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 sama dag og fundurinn fer fram. Rútan leggur af stað frá:
Siglufirði kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.
Ólafsfirði kl. 18:15, frá Tjarnarborg
Dalvík kl. 18:30 frá skrifstofu félagsins
Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey:
Grenivík: Hringið í Róbert svæðisfulltrúa í síma 844 5729 og látið vita ef þið ætlið að fá far.
Hrísey: Hringið í Guðrúnu svæðisfulltrúa í síma 692 4910 og látið vita ef þið ætlið að fá far.
Mætið á fundinn, verið virk í deildinni ykkar!
Veitingar í boði
Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir heppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur.