Aðalfundir deilda verða í kvöld

Aðalfundir deilda félagsins árið 2017 fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri í kvöld, mánudaginn 13. febrúar kl. 19:30. Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem Anna Lóa Ólafsdóttir mun flytja fyrirlestur um hamingjuna. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. Félagar fjölmennum.

Í ár þarf að kjósa til tveggja ára í öllum deildum um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur. 

Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir heppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur. 

Kaffiveitingar í boði 

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta Möggu vita í síma 460 3620 fyrir kl. 12 mánudaginn 13. febrúar. Rútan leggur af stað frá:

  • Siglufirði kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins.

  • Ólafsfirði kl. 18:15, frá Tjarnarborg

  • Dalvík kl. 18:30 frá skrifstofu félagsins 

Sameinast verður í bíla frá Grenivík og Hrísey:

  • Grenivík: Hringið í Róbert svæðisfulltrúa í síma 844 5729 og látið vita ef þið ætlið að fá far.

  • Hrísey: Hringið í Guðrúnu svæðisfulltrúa í síma 692 4910 og látið vita ef þið ætlið að fá far.