Aðalfundir deilda félagsins

Fundirnir verða í Alþýðuhúsinu
Fundirnir verða í Alþýðuhúsinu

Vert er að minna á aðalfundi deilda félagsins sem fara fram í kvöld, fimmtudaginn 7. febrúar. Fundirnar hefjast kl. 20, með sameiginlegum fundi deildanna þriggja í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri. Þar mun Davíð Kristinsson, Heildrænn Heilsuþjálfari, verða með fræðsluerindi. Að þeim fundi loknum munu deildirnar halda sína aðalfundi hver á sínum stað í húsinu.

Kaffiveitngar í boði. 

Kosningar:

Í Iðnaðar- og tækjadeild á að kjósa um til tveggja ára embætti formanns, ritara og þriggja meðstjórnanda. Einnig þarf að kjósa um einn meðstjórnanda til eins árs.

Í Matvæla og þjónustudeild á að kjósa um til tveggja ára embætti formanns, ritara og þriggja meðstjórnanda. Einnig þarf að kjósa um embætti varaformanns til eins árs.

Í Opinberu deildinni á að kjósa um til tveggja ára embætti formanns, ritara og þriggja meðstjórnanda.