Aðalfundir deilda 2019 - akstur í boði!

Aðalfundir deilda félagsins árið 2019 fara fram á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri mánudaginn 11. febrúar nk. kl. 19:30. Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem flutt verður erindi. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund. 

Félagið skiptist í þrjár starfsgreinadeildir, Iðnaðar- og tækjadeild, Matvæla- og þjónustudeild og Opinberadeild.

Í ár verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig. Einnig þarf að kjósa einn meðstjórnanda til eins árs í Iðnaðar- og tækjadeild og í Matvæla- og þjónustudeild. Í Opinberudeild þarf líka að kjósa varaformann til eins árs.

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

Þeir sem ætla að fá far með rútunni sem fer frá Siglufirði verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 13 mánudaginn 11. febrúar.

  • Siglufjörður, rúta kl. 18:00, frá skrifstofu félagsins
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:15, frá Tjarnarborg
  • Dalvík, rúta kl. 18:30, frá skrifstofu félagsins

Sameinast verður í bíla frá:

  • Grenivík, hringið í svæðisfulltrúa í síma 844 5729
  • Hrísey, hringið í svæðisfulltrúa í síma 692 4910

Mætið á fundinn, verið virk í deildinni ykkar!

Veitingar í boði

Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir heppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur.