Aðalfundir deilda fara fram 10. febrúar

Fundirnir verða á Hótel KEA
Fundirnir verða á Hótel KEA

Aðalfundir deilda félagsins fara fram kl. 20:00 þriðjudaginn 10. febrúar 2015 á Hótel KEA á Akureyri

  • Í ár þarf að kjósa til tveggja ára um formenn deildanna, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.

Fyrst verður sameiginlegur fundur allra deilda þar sem Arnheiður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, mun ræða um ferðaþjónustu í Eyjafirði. Að því loknu munu deildirnar hver fyrir sig halda sinn aðalfund.

Nöfn þriggja fundargesta verða dregin út og fá þeir hepppnu helgardvöl á Illugastöðum í vetur.

Kaffiveitingar í boði

ATH! Boðið verður upp á akstur til Akureyrar

  • Þeir sem ætla að fá far með rútunni verða að láta vita í síma 460 3620 fyrir kl. 16 mánudaginn 9. febrúar.
  • Siglufjörður, rúta kl. 18:30, frá skrifstofu félagsins. 
  • Ólafsfjörður, rúta kl. 18:45, frá Tjarnarborg
  • Dalvík, rúta kl. 19:00 frá skrifstofu félagsins
  • Hrísey, rúta kl. 19:15

Sameinast verður í bíla frá Grenivík: 

  • Hringið í Róbert svæðisfulltrúa í síma 844 5729 og látið vita ef þið ætlið að fá far með honum.
Félagar, mætið á fundinn, verið virk í deildinni ykkar!