Á ferð á Grenivík

Ægir í Gjögri að fara yfir málin
Ægir í Gjögri að fara yfir málin

Fyrr í apríl fóru fjórir starfsmenn félagsins til Grenivíkur og heimsóttu nokkur fyrirtæki. Þarna voru á ferð Björn Snæbjörnsson, Anna Júlíusdóttir, Hafdís E. Ásbjarnardóttir og Ásgrímur Örn Hallgrímsson. Á morgun verða þau í sömu erindagjörðum í Fjallabyggð.

Svæðisfulltrúi félagsins í Grenivík, Róbert Þorsteinsson, var með í för er farið var í nokkur fyrirtæki á staðnum og spjallað við starfsfólk og yfirmenn, m.a. Gjögur, Darra, leikskólann og elliheimilið. Einnig var kíkt við á skrifstofu Grýtubakkahrepps til að heyra aðeins í sveitarstjóranum og starfsmönnum skrifstofunnar.