87% telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög

Mynd af vef ASÍ
Mynd af vef ASÍ

Í nýrri alþjóðlegri skoðanakönnun um viðhorf til vinnu og vinnuaðstæðna, sem framkvæmd var hér á landi um mitt síðasta ár og kynnt í Háskóla Íslands sl. föstudag, kemur m.a. fram að 87% svarenda telja launafólk þurfa sterk verkalýðsfélög til að verja hagsmuni þess en aðeins 4% eru ósammála fullyrðingunni. 

Tekið var 3.000 manna tilviljunarúrtak einstaklinga 18 ára og eldri úr Þjóðskrá. Gagnaöflun hófst 26. maí og lauk 31. ágúst 2016. Alls svöruðu 1.127 könnuninni.

Þegar spurt var álits á fullyrðingunni; Sterk verkalýðsfélög eru slæm fyrir íslenskt efnahagslíf, sögðust 79% vera ósammála en aðeins 5% voru sammála henni.

Þegar spurt var hvað einkenni gott starf svöruðu 97% atvinnuöryggi og að starfið væri áhugavert. 83% nefndu möguleika á framgangi í starfi, 79% háar tekjur og 78% sögðu sjálfstæði í starfi mikilvægt þegar kæmi að góðum störfum.

Könnunina má sjá í heild sinni hér