749 umsóknir um orlofskosti sumarsins

Nýlega rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.” Til félagsins bárust 749 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Þeir sem sóttu um geta skráð sig inn á orlofshúsavef félagsins og fundið undir liðnum SÍÐAN MÍN svarbréfið frá félaginu. Þeir sem eru með stöðuna samþykkt og vilja fá það sem viðkomandi fékk úthlutað geta farið í liðinn AÐGERÐ og greitt með korti fyrir orlofshúsið eða íbúðina. Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi mánudaginn 3. maí. nk.

Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra. Eins og áður segir bárust 749 umsóknir, 549 fengu samþykkt, þar af voru 250 vegna orlofs að eigin vali.

Þeir sem fá úthlutað þurfa að vera búnir að ganga frá greiðslu í síðasta lagi mánudaginn 3. maí. nk.

  • 5. maí kl. 10:00 verður opnað fyrir orlofshús á netinu fyrir þá sem fengu neitun. Þá hefur viðkomandi tíma til 12. maí til að sækja um.
  • 20. maí kl. 10:00 verður opnað á netinu fyrir það sem enn verður laust. Þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun hefur félagið notað og þróað punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.