733 umsóknir um orlofshús

Nýlega rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Orlof að eigin vali.” Til félagsins bárust 733 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Allir sem sóttu um geta skráð sig inn á félagavefinn og fundið undir liðnum SKJÖL svarbréfið frá félaginu. Bréf til félagsmanna sem ekki hafa skráð netfang sitt hjá félaginu fara í póst á næstunni og því mun þeim berast svar á næstu dögum. Þeir félagsmenn sem skráð hafa netfangið sitt hjá félaginu fengu rétt í þessu svar á rafrænan hátt. Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra, 540 fengu já en 193 fengu nei.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 2. maí nk. Ekki verður endurúthlutað en í byrjun maí verður opnað á netinu fyrir það sem laust er og þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Þá verður einnig hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun hefur félagið notað og þróað punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.