683 umsóknir um orlofshús

Nýlega rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Viku að eigin vali.” Til félagsins bárust 683 umsóknir og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Bréf til félagsmanna fara í póst í vikunni og því mun þeim berast svar á næstu dögum. Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra, 501 fengu já en 182 fengu nei.

Þeir sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 25. apríl nk. Ekki verður endurúthlutað en í lok apríl verður opnað á netinu fyrir það sem laust er og þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær. Þá verður einnig hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins til að fá upplýsingar um lausar vikur. 

Punktakerfi
Til að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun hefur félagið notað og þróað punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.