61 sótti um starf þjónustufulltrúa

Nýlega auglýsti félagið eftir öflugum liðsmanni í starf þjónustufulltrúa hjá félaginu, nánar tiltekið á Akureyri. Umsóknarfrestur rann út á miðnætti í gær og sóttu 61 einstaklingar um starfið og er Capacent nú að fara yfir umsóknirnar, en fyrirtækið sér um ráðningarferlið. Stefnt er að því að ganga frá ráðningu á nýjum þjónustufulltrúa fyrir næstu mánaðarmót.