Nýlega rann út frestur til að skila inn umsóknum fyrir sumarið um orlofsíbúð, orlofshús eða “Viku að eigin vali.” Til félagsins bárust 600 umsóknir, 15 fleiri en í fyrra, og er vinnu við að fara yfir þær lokið og búið að úthluta. Félagsmenn mega búast við því að fá svar á næstu dögum því svarbréf fara í póst í dag og næsta mánudag. Því miður er alltaf eitthvað um að ekki sé hægt að verða við óskum allra, 440 fengu já en 160 fengu nei. Þeir sem fengu úthlutað þurfa að ganga frá greiðslu í síðasta lagi 19. apríl nk. Í byrjun maí verður endurúthlutað til þeirra sem fengu nei. Ef eitthvað verður laust að því loknu verður opnað á netinu fyrir það sem laust er og þá gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.
Punktakerfi
Til að gæta sem mestrar sanngirni við úthlutun
hefur félagið notað og þróað punktakerfi sem þykir hafa reynst vel. Hver félagsmaður vinnur sér inn einn punkt fyrir hvern mánuð sem
hann greiðir til félagsins. Engu máli skiptir hve há upphæð félagsgjaldsins er í hverjum mánuði. Þeir sem síðan hafa
safnað flestum punktum þegar kemur að úthlutun ganga fyrir þegar mikil ásókn er í húsin. Þegar félagsmaður fær
úthlutað tíma í orlofshúsi dregst tiltekinn punktafjöldi frá inneign viðkomandi þannig að tryggt er að þeir sem fá
úthlutað dvöl í orlofshúsi eru ekki áfram efstir á blaði, en halda þó auðvitað áfram að safna sér punktum fram
að úthlutun næsta árs með því að greiða félagsgjöld.