6. þing SGS hefst á morgun

6. þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett á Hótel Selfossi á morgun, 11. október, og mun standa yfir í tvo daga. Þingið hefur æðsta vald í málefnum sambandsins og þar eru lagðar línurnar í kjaramálum og starfsemi sambandsins til næstu tveggja ára. 135 fulltrúar eiga rétt á að sitja á þingið, þar af 11 frá Einingu-Iðju. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar-Iðju, mun setja þingið. Að því loknu munu þeir Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, flytja ávörp. 

Dagskrá þingsins verður með hefðbundnu sniði en í takt við nýja tíma þá verður þingið rafrænt, þ.e.a.s. engum pappír verður dreift heldur munu gögn þingsins verða aðgengileg á sérstökum þingvef. Þá munu kosningar þingsins sömuleiðis fara fram með rafrænum hætti. Nokkrar nefndir verða starfandi á þinginu og ber þar helst að nefna kjara- og atvinnunefnd, húsnæðis- og velferðarnefnd, laganefnd auk fjárhags- og starfsháttanefndar.

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. 

Aðildarfélög SGS eru þessi: 
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf.

Dagskrá 6. þings Starfsgreinasambands Íslands

Miðvikudagur 11. október 2017

Kl. 10:00              
Setning og ávörp gesta
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Kl. 10:45              
Kosning þingforseta og ritara, kynning á þingvef, álit kjörbréfanefndar, kosning nefndanefndar

Kl. 11:00              
Yfirlit yfir þróun og horfur í kjaramálum
Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ

Kl. 11:30              
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra SGS 2015-2017
Ársreikningar sambandsins 2015 og 2016

Kl. 11:45  
Matarhlé

Kl. 13:00  
Kynning á ályktunum, lagabreytingum, starfs- og fjárhagsáætlun
Lagabreytingar, fyrri umræða

Kl. 13:30  
Formenn nefnda um sjúkrasjóð og félagsaðild kynna niðurstöður.
Almennar umræður

Kl. 15:00  
Kaffihlé

Kl. 15:30  
Nefndanefnd kynnir niðurstöður sínar
Nefndastörf (kjara- og atvinnunefnd, fjárhags- og starfsháttanefnd, húsnæðis- og velferðarnefnd, laganefnd og kjörnefnd)

Kl. 19:00 
Þingveisla

Fimmtudagur 12. október 2017
Kl. 09:00              
Lagabreytingar, síðari umræða og afgreiðsla

Kl. 10:00              
Almenn umræða
Afgreiðsla ályktana frá nefndum
Afgreiðsla starfs- og fjárhagsáætlunar
Ákvörðun um skatthlutfall

Kl. 12:30 
Matarhlé

Kl. 13:30              
Afgreiðslu mála fram haldið

Kl. 15:30              
Kosning formanns SGS
Kosning varaformanns SGS
Kosning 5 aðalmanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning 5 varamanna í framkvæmdastjórn SGS
Kosning endurskoðenda og félagslegar skoðunarmanna reikninga
Kosning fastanefnda (Laganefnd og Kjörnefnd)

Kl. 17:00              
Þingslit