Félagið minnir á að skráning stendur yfir í tvær af þremur orlofsferðum sumarsins. Sex
sæti eru laus í ferðina til Ítalíu og nokkur sæti eru enn laus í innanlandsferð félagsins. Athugið að síðasti
skráningardagur í utanlandsferðina er 1. apríl nk.
Kíkið við á skrifstofu félagsins á Akureyri, hringið í síma 460 3600 eða sendið póst á netfangið ein@ein.is og látið skrá ykkur ef áhugi er fyrir hendi.
Ferðir ársins:
- 24. júní 2014 – Dagsferð fyrir aldraða félagsmenn.
- 11 til 14. ágúst 2014 – Austurland-Loðmundarfjörður-Mjóifjörður.
- 5. til 16. júní 2014 – Ferð til Ítalíu
Nánar má lesa um allar ferðirnar þrjár sem boðið er upp á árið 2014 hér.
Hægt er að borga fyrir ferðirnar með kreditkorti og er jafnframt hægt að semja um greiðslur, þ.e. skipta þeim á nokkur tímabil.