ASÍ heldur rafrænt þing á morgun, 21. október, þar sem kjarnaatriðin, samkvæmt lögum ASÍ, eru afgreidd en þinginu svo frestað fram á vor þegar farið verður í málefnavinnu. Mikilvægt er að þingfulltrúar kynni sér vel hvernig það á að bera sig að við innskráningu á þingið, biðja um orðið og kjósa í kosningum á þinginu.
Í ár á Eining-Iðja rétt á því að senda níu fulltrúa á þingið.
ASÍ hefur sett saman leiðbeiningar á íslensku og ensku sem sýna hvernig þingfulltrúar eiga að bera sig að á þessum 300 manna Zoom fundi.
Dagskrá þingsins:
Miðvikudagur, 21. október
Kl. 10:00
Þingsetning
Ávarp forseta ASÍ
Ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra
Ávarp ASÍ-UNG
Opnunarerindi
Sharan Burrow, framkvæmdastjóri ITUC: Réttlát umskipti
Kl. 11:20
Stutt hlé
Kl. 11:30
Álit kjörbréfanefndar
Afgreiðsla kjörbréfa
Kosning þingforseta og embættismanna þingsins
Þingsköp ASÍ – afgreiðsla tímabundinna frávika
Tillaga um frestun tiltekinna dagskrárliða til framhaldsþings:
- Málefni þingsins - kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað.
o Öflugt atvinnulíf á sjálfbærum grunni - góð græn störf
o Réttindi og félagsleg vernd
o Menntun til framtíðar
o Réttlátt skattkerfi
- Lagabreytingar – kynningu, umræðum og afgreiðslu frestað.
Kl. 11:45
Skýrsla forseta ASÍ
Ársreikningar ASÍ og stofnana
Kosningar og almennar umræður hefjast
Kosning forseta ASÍ
Kosning 1. og 2. varaforseta
Kosning í miðstjórn: aðal- og varamenn
Kosning aðalskoðunarmanna og varamanna
Kosning löggilts endurskoðanda
Kosning kjörnefndar
Kl. 12:15
Stutt hlé
Kl. 12:30
Almennar umræður halda áfram
Kl. 14:00
Forseti ASÍ frestar 44. þingi sambandsins
Nefndarstörfum og málefnavinnu, ásamt umræðum og afgreiðslu, verður frestað fram á vor 2021.